Bjarni hefur haldið þetta námskeið í Breiðholtinu síðastliðin þrjú sumur með góðum árangri, en nú hefur Sturla Ásgeirs bæst í hópinn með honum og eru þeir félagar flott "combó" sem krakkarnir eiga eftir að læra mikið af.
Skipt er í hópa eftir aldri og æfa strákar og stelpur saman, ásamt því að farið er yfir markmið, mataræði, sjálfstraust, leikskilning og tækni þar sem áhersla er lögð á einstaklingsþjálfum og leikgreiningu hvers og eins.
Myndir teknar á æfingum fös. 15. jún. af öllum aldursflokkum komnar inn á Facebook ÍR Handbolta. |
Við hvetjum ykkur til að vera vinir okkar á Facebook og merkja ykkur inn á myndirnar þar.
No comments:
Post a Comment