mánudagur, 14. maí 2012

Handboltaskóli ÍR, Bjarna Fritz og Stulla


Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)

Æfingatímar eru eftirfarandi:
 11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00

föstudagur, 11. maí 2012

Breytt plan á leikjum!!

Jæja, eins og staðan er þá er búið að breyta leikjaplaninu fyrir helgina. Öll liðin spila bara 2 leiki.
Við fréttum að þessu bara núna og ætlum að setja þetta strax inná bloggið.
Ath! Allir leikir eru spilaðir á sunnudaginn í Austurbergi!

Eldra ár: Mæting kl. 09:30!
ÍR - Fjölnir 2      kl. 10:00
ÍR - Valur1         kl. 12:00

Úrslitaleikur er svo spilaður kl. 13:00

Yngra ár: Mæting kl. 10:00 fyrir bæði liðin!
Lið1:
ÍR1 - Valur    kl. 10:30
ÍR1 - Fylkir1 kl. 12:30

Lið2:
ÍR2 - Fylkir2    kl. 10:30
ÍR2 - Víkingur  kl. 11:30

Úrslitaleikur er svo spilaður kl. 13:30


Mætum hress, kát og með bros á vör :-)

Kv. Sigrún Björk og Aron

mánudagur, 7. maí 2012

ATH BREYTING!!! Reykjavíkurmót 6.fl. kvenna í Austurbergi 12 og 13. maí

Breyting hefur orðið á skipulag Reykjavíkurmót 6. flokks kvenna þar sem lið drógu sig úr keppni verður bara spilað á sunnudaginn!  Sjá skipulag hér að neðan!

Nú er komið að Reykjavíkurmótinu og ÍR var úthlutað að sjá um 6. flokk kvenna.
Því miður er fyrirvarinn ótrúlega stuttur, vorum að fá í hendur leikjaplan fyrir mótið sem má sjá hér fyrir neðan. Foreldrar, vandamenn og aðrir ÍR-ingar við verðum bara að vera dugleg að taka þátt og skrá okkur í t.d. >>tímavörslu og hússtjórn<<.

Austurberg

Völlur 1

Völlur 2
Tími
Deild
Leikur
Tími
Deild
Leikur




sun
10:00
Eldri A
Valur 2 - Fjölnir
sun
10:00
Eldri B
Fjölnir 2 - ÍR
sun
10:30
Yngri B
ÍR 2 - Fylkir 2
sun
10:30
Yngri B
Valur - ÍR 1
sun
11:00
Eldri A
Fylkir - Valur 2
sun
11:00
Eldri B
Valur 1 - Fjölnir 2
sun
11:30
Yngri B
Víkingur - ÍR 2
sun
11:30
Yngri B
Fylkir 1 - Valur
sun
12:00
Eldri A
Fjölnir - Fylkir
sun
12:00
Eldri B
ÍR - Valur 1
sun
12:30
Yngri B
Fylkir 2 - Víkingur
sun
12:30
Yngri B
ÍR 1 - Fylkir 1
sun
13:00
Eldri
Úrslitaleikur



sun
13:30
Yngri
Úrslitaleikur



















mánudagur, 30. apríl 2012

MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING


Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).

Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.

SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING! 
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING. 


Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af

Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR

þriðjudagur, 24. apríl 2012

Húsavík!!!

Hæ,
nú ætla ég að skrifa um það sem var ákveðið á foreldrafundi í gær.
Við hittumst kl.7:30 á föstudaginn í ÍR heimilinu,leggjum af stað kl.8.Gott er að hafa með sér eitthvað til að drepa timann,eins og  ipod,tölvuleiki eða jafnvel bók.Við reiknum með 6-7 tíma keyrslu,þannig að þið þurfið lika að taka með ykkur þolinmæði og góða skapið.Fullt af því.Þið þurfið lika að vera með nesti til að borða á leiðini,en við fáum kvöldmat á hóteli á Húsavík.
  Við vitum ekki hvernig veðrið verður um helgina og best er að taka með sér úlpu,húfu og vetlinga til öryggis.Annars ekki gleyma keppnisdótinu,boltum og sundfatnaði.Dýna eða vindsæng,koddi og sæng eða svefnpoki,handklæði og auka föt.Mömmur ykkar eru með það á hreinu held ég.
Þið þurfið lika að koma með 21.000 kr. til fararstjóra og inní því er vasapeningur sem þið fáið á laugardaginn eftir leiki til að rölta í sjoppu með.Og kannski ís á leiðini heim á sunnudaginn.Ekki þurfið þið að hafa meiri pening með ykkur.Það má lika koma með myndavélar og simar,en það er ein regla sem gildir.Þegar við erum að fara úr stofuni okkar,verðið þið sjálfar að muna að setja allar græjur í bakpoka sem ég verð með svo engu verði stolið eða týnt.Svo getið þið nálgast þessu milli leikja eða eins og þið viljið.
Við fáum stofu bara fyrir okkur,en ég veit ekki hvar við gistum.Það eru mörg lið,og gist er á þremum stöðum sem eru allir nálægt íþróttahúsi og hóteli.Matur verður á hóteli,ekki í skólanum eins og venjulega sem er ekkert mál.Þið megið ráða hver situr hvar í bilnum á leiðini,jafnvel ráða á hvaða tónlist við hlustum(sjáum til með það reyndar)og hver sefur við hliðina á hverjum...ég verð næst hurðini.
Ég mæli með að ferðast í ÍR göllunum,það er þægilegra,og lika auðveldara fyrir farastjóra að safna ykkur saman þegar við stoppum.Og ég veit að við högum okkur vel,það hefur aldrei verið vandamál.
Meira var það ekki,en ef ég er að gleyma einhverju endilega látið mig vita eða spyrjið bara...
Kv.Jammi
p.s.
hér fyrir neðan setti ég póst sem ég fékk frá þeim á Húsavík og þar getið þið lesið um dagskrána,matsedill og fl.

Um Húsavíkurmótið

DAGSKRÁ

Föstudagur 27. apríl
Gestir koma til Húsavíkur. Forsvarsmenn liða koma í íþróttahúsið til að staðfesta mætingu og fá upplýsingum um gististaði.
  • Mótssetning - fyrstu leikir.                           kl. 17:00…..
  • Kvöldmatur.                                                   kl. 18:00 -  20:00
  • Leiksýning í sal Borgarhólsskóla (frítt inn).     kl.  20:00 – 21:00
  • Sundlaug Húsavík opin.                                kl.  06:45 – 21:00
Laugardagur 28. apríl

föstudagur, 20. apríl 2012

Mikið um að vera hjá yngri flokkum okkar þessa helgi

Mikið um að vera hjá yngri flokkum okkar þessa helgi. Yngra árið í 6.- og 5. fl. karla og kvenna að keppa hingað og þangað. Ásamt því sem 4. fl. kvenna er að keppa í 8-liða úrslitum Íslandsmóts í Austurbergi á laugardag. kl. 12:30.

Við hvetjum ykkur til að smella af myndum og setja inn á myndaalbúm flokka. Ef þið eruð ekki viss hvernig þetta er gert er bara að láta þjálfara fá myndirnar á USB og þeir koma þeim áleiðis á vefstjóra ÍR Handbolta sem setja þær þá inn fyrir ykkur. Það gerist ekkert að sjálfu sér, þið eruð fréttamenn okkar og skráið sögu ÍR Handbolta með því að taka myndir.

 

Meðfylgjandi mynd er t.d, tekin fyrir nokkurm árum af stelpunum sem nú eru komnar í 4. flokk
og eru að fara að spila í 8.liða úrslitum Íslandsmóts.